Heilsa og öryggi í forgang
ISS hefur sett sér stranga og metnaðarfulla áætlun varðandi öryggi og heilsu starfsmanna og einnig vegna umhverfismála. Alþjóðafyrirtækið ISS er nú fjórði stærsti vinnuveitandi í heiminum með yfir 520.000 starfsmenn í 60 löndum. Heilsa og öryggi starfsmanna við sín daglegu störf er fyrsta forgangsatriði ISS. Á sama hátt vill ISS lágmarka það fótspor sem starfsemi fyrirtækisins skilur eftir sig í umhverfinu, með virkri umhverfisstefnu. Heilsu- og öryggisátak ISS er kallað „Drive to 100“. Það stendur fyrir;
- Vera númer 1 þ.e. leiða heilsu-, öryggis- og umhverfismál í Fasteignarumsjónar iðnaðinum
- ISS stefnir á 0 vinnutengd dauðsföll í fyrirtækinu á heimsvísu
- ISS stefnir á 0 alvarleg slys og starfstengda áverka í fyrirtækinu á heimsvísu
Þetta er mikið áhersluatriði hjá ISS í dag og eiga öll löndin að vera búin að innleiða Heilsu-, öryggis- og umhverfisstaðal ISS fyrir lok 2011.
ISS Ísland hefur unnið markvisst að bættri heilsu starfsmanna sinna. Nefna má m.a. samstarf ISS við Heilsuvernd þar sem starfsmenn geta leitað ráðgjafar með heilsufarsvandamál hjá læknum og hjúkrunarfræðingum, kennsla í líkamsbeitingu á námskeiðum og með því að leitast við velja rétt áhöld og tæki með vinnuvernd í huga og sem létta störfin.
Umhverfismálin hafa ávallt verið í forgrunni hjá okkur. Við höfum markvisst unnið að því að minnka notkun efna og valið sem umhverfishæfust efni. Í nóvember 2009 fékk ISS Ísland, Svansvottun vegna ræstingarþjónustu fyrirtækisins og var fjórða fyrirtækið á Íslandi til að hljóta Svaninn. Svansvottunin hefur fyrst og fremst skilað betra utanumhaldi og markvissari eftirfylgni varðandi umhverfismálin í breiðu samhengi. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Enn og aftur stórbætt nýting efna,nánast öll efni sem notuð eru umhverfishæf, minni bensíneyðsla á bílaflota, minni losun koltvísýrings og fleira mætti nefna.
Öryggismálin eru nú í forgrunni. Við höfum gefið út Öryggisreglur ISS, sem allir eiga að fá kynningu á á námskeiðum og allir eiga að tileinka sér. Með kerfisbundinni nálgun eigum við að sjá til þess að hver einast starfsmaður ISS sé meðvitaður um öryggismál, byrji aldrei verk án þess að meta aðstæður og áhættu, hafi ávallt við hendina nauðsynlegan hlífðar- og varnarbúnað og noti aðeins vélar, tæki og búnað sem hann treystir til verksins.
Nýlega buðum við upp á námskeið í skyndihjálp og síðan vorum við með „Heilsuviku ISS“, þar sem farið var yfir grunnatriði heilsu og vellíðunar. Eftir stendur að það er sama hvað fyrirtækið gerir mikið, að ef við starfsmennirnir tileinkum okkur ekki þessi góðu ráð og reglur, þá gerist lítið. Heilsa okkar og öryggi er fyrst og fremst í okkar eigin höndum.
Guðmundur Guðmundsson