Að vinna hjá ISS

Eitt af lykilatriðum í velgengni ISS er ánægður og hæfur starfsmaður sem er reiðubúinn að mæta óskum viðskiptavina fyrirtækisins og tryggja þannig ánægju þeirra.
Í dag þjónustar ISS um 500 viðskiptavini og bjóðum við upp á fjölbreytt störf s.s  við ræstingar  2-7 daga í viku, aukavinnu við ræstingar á kvöldin, heils dags störf við ræstingar, störf í eldhúsum og við matarumsjón.  Auk þess eru í boði störf við sérverk s.s hreingerningar, bónun og fl.
Allt starfsfólk ISS fær  viðeigandi þjálfun og kennslu, en þjálfun á starfsfólki felst í að kenna fólki að vinna verkið á sem hagkvæmastan hátt.  Til þess þarf góð  áhöld, tæki,  réttu ræstingarefnin og kennslu í meðhöndlun á þeim.   Við viljum að starfsfólk okkar skili framúrskarandi þjónustu, til að svo megi vera er lögð rík áhersla á að skapa réttu umgjörðina.
ISS hefur sett sér siðareglur, þar er m.a. lögð áhersla á  að allir starfsmenn komi fram við hvorn annan af virðingu.  Stjórnendur ISS eru virkjaðir  til að efla og styrkja alla starfsmenn til athafna. Starfsfólk hefur möguleika á að þróast í starfi ,  árangur okkar samanstendur af núverandi og verðandi stafsfólki sem skarar framúr og sýnir frumkvæði.
Stefna ISS er að vera í hópi bestu atvinnurekenda á Íslandi. 
 Starfsmannasvið / ISSWorld Iceland - ISS

 

 

 

 

Austurhrauni 7, 210 Garðabæ