Tilgangur starfsmannastefnu ISS er að marka stefnu í daglegri starfsemi varðandi starfsmannamál og samskipti innan fyrirtækisins. Stefnan túlkar afstöðu ISS Íslands í starfsmannamálum.
ÞJÓNUSTA BYGGÐ Á TRAUSTI OG STARFSGLEÐI
Lykilatriði í velgengni ISS er ánægður og hæfur starfsmaður sem er reiðubúinn að mæta óskum viðskiptavina fyrirtækisins og tryggja þannig ánægju þeirra.
ISS vill með faglegri og hvetjandi stjórnun hafa starfsmannastefnu sem byggir á opnum samskiptum, trausti og samvinnu allra í fyrirtækinu, til að auka ánægju starfsmanns.
ISS vill á sem hagkvæmastan máta skapa starfsmönnum sínum þá aðstöðu sem þarf, til að geta á hverjum tíma veitt þá þjónustu sem viðskiptavinurinn þarfnast.
ISS vill auka hæfni starfsfólks með námskeiðahaldi og starfsþjálfun.
ISS vill gefa starfsfólki kost á að þróast innan fyrirtækisins. Breytingar kalla á jákvæðni starfsfólks og að allir leggist á eitt um að vinna að sífelldum endurbótum.
ISS vill styðja starfsmannafélagið eftir því sem við verður komist, til að félags- og frístundir starfsmanna verði sem fjölbreyttast.
Starfsmannastefna ISS er leiðarljós í daglegri starfsemi fyrirtækisins. Hver starfsmaður á rétt á að geta rætt við yfirmann sinn eða yfirmann starfsmannamála um starf sitt og persónulega hagi er tengjast starfinu, þegar hann telur þörf á slíku.