Fasteignaumsjón

Fasteignaumsjón / Þjónusta ISS - ISS
Tryggja virði fasteigna

Reglubundið viðhald fasteigna og nærumhverfis  er mikilvægur þáttur í verndun þeirra fjármuna sem í þeim liggja. Eigandi fasteigna þarf að tryggja að fyrirbyggjandi viðhaldi sé sinnt til þess að koma í veg fyrir skemmdir og tjón sem annars gæti orðið. Með samstarfi við ISS um fasteignaumsjón má tryggja og auka virði fasteignarinnar hvort sem til skemmri eða lengri tíma er litið.

Þjónusta ISS
Hægt er að samþætta þjónustu ISS á marga vegu, hvort sem um er að ræða staka þjónustu eða marga þjónustuþætti (t.d. fasteignaumsjón, ræsting og mötuneyti) sem skilar betri nýtingu á mannafla, hærri afköstum og hagræðingu.

Við sköpum sveigjanlega, gagnsæa og sérhannaða þjónustulausn  í nánu samstarfi við viðskiptavininn sem gefur honum tækifæri á að velja þá þjónustuþætti sem henta hverju sinni.
Ráðgjöf okkar felst í því að leita uppi þá þjónustuþætti sem þörf er á og henta hverjum viðskiptavini fyrir sig ásamt því að leggja fram heildræna viðhaldsáætlun og fylgja henni eftir. Markmið okkar er að hámarka virði fasteignarinnar með því að hámarka nýtingu mannafla sem tengjast þeim þjónstuþáttum sem fasteignaumsjónin tekur til.

Samhæfðar þjónustulausnir
Við bjóðum einnig upp á marga aðra þjónustuþætti, t.d. ræstingar, sérverkefni (bónun, hreingerningar o.s.frv.) og rekstur mötuneyta. Sjá heimasíðu

Með því að samþætta þjónustulausnir næst mikil hagræðing, bæði í fjárhagslegum og stjórnunarlegum skilningi. Styrkur ISS byggist á traustu, alþjóðlegu baklandi og þeirri getu að geta boðið þjónustu í ólíkum rekstrarumhverfi fyrirtækja.

 

 

 

 

Austurhrauni 7, 210 Garðabæ