
Rekstur og umsjón fasteignar krefst réttra einstaklinga með rétta hæfni ásamt góðri mannauðs- og tímastjórnun. Þegar verkefnum er deilt út á meðal margra ólíkra birgja og verktaka skortir oft heildarsýn og getu til að hugsa í samhæfðum lausnum og þannig tapast fjármunir og dýrmætur tími.
Fasteignaumsjón ISS veitir þjónustu sem skiptir máli fyrir ímynd fyrirtækis.
Með reglubundnu viðhaldi og þjónustu í og við fasteignina má tryggja að aðkoman að fyrirtækinu sé ávallt til fyrirmyndar.
Fasteignaumsjón ISS veitir viðskiptavinum sínum jafnframt mikilvæga þjónustu á sviði eignastýringar með það fyrir augum að vernda fjárfestinguna.
ISS tekur að sér öll verkefni sem tengjast fasteigninni og nærumhverfi hennar. Þeir 850 starfsmenn ISS, hver með sína sérhæfingu, ásamt víðfemu neti samstarfsaðila tryggja að ISS getur skilað hverri þeirri þjónustu sem fasteignin þarfnast.