Mannauður og kerfi

Mannauður og kerfi / Fasteignaumsjón - ISS 

Styrkur mannauðsins
Stór hluti velgengni ISS er hæfum og þjónustulunduðum starfsmönnum okkar að þakka. Stöðug áhersla ISS í þróun mannauðsstjórnunar og þjálfunar tryggir þjónustustig starfsmanna ISS til að mæta væntingum viðskiptavina okkar.

Við leggjum ríka áherslu á starfsþróun þjónustufulltrúa, verkstjóra og annarra sem eru í beinum samskiptum við aðra starfsmenn og viðskiptavini. Við búum ekki aðeins yfir áreiðanlegu og hæfu starfsfólki, heldur vel skilgreindum og skjalfestum verkferlum sem tryggja rétta framkvæmd verksins.

Því má með sanni segja að við höfum mannauðinn til að samþætta ólíka þjónustuþætti, samhæfa margar tæknilegar útfærslur og starfa þvert innan skipulags.

Eignaumsjón
ISS tekur að sér umsjón og viðhald á kerfum og búnaði fasteignarinnar, s.s. loftræstikerfum, aðgangskerfum o.s.frv. til að tryggja lægri bilanatíðni og hagkvæmara viðhald. ISS getur haldið nákvæma yfirlitsskrá yfir allar eignir og kerfi sem tilheyra fasteigninni. Slík þjónusta veitir gagnsæi og yfirsýn og auðveldar alla ákvarðanatöku gagnvart viðhaldi.

 Umsjón með leigu
Fasteignaumsjón ISS býður upp á utanumhald leigusamninga, stýra auglýsingum gagnvart útleigu, sýna áhugasömum húsnæðið, gerð leigusamninga, vöktun markaðsleigu, móttaka leigjenda, skil á húsnæði eftir leigu, stjórnun húsfunda, ágreiningsstjórnun og fundir með leigjendum.

 

 

 

 

Austurhrauni 7, 210 Garðabæ