Borgir - Rannsóknarhús við Háskólann á Akureyri
Borgir voru reistar árið 2004 og teknar formlega í notkun 1. september það ár. Markmiðið með framkvæmdinni var að byggja upp þekkingargarð við Háskólann á Akureyri og var uppbygging húsnæðisins, og síðar eignarhald og rekstur, alfarið í höndum einkaaðila.
ISS, ÍAV og Landsafl stóðu saman að tilboði í verkefnið og hafði ISS því góða aðkomu að hönnun húsnæðisins frá upphafi. ISS lagði áherslu á velja hentug gólfefni fyrir húsnæðið með það fyrir augum að auðvelt yrði að halda því hreinu og voru gólflistar í sameign og handrið á stigum og göngum sérvalin til að tryggja hagkvæmni í ræstingum.
Borgir eru 5.400 m² að flatarmáli og hýsa í dag fjölmargar stofnanir, þar á meðal MATÍS, Nýsköpunarmiðstöð, Hafrannsóknarstofnun, Jafnréttisstofu, Umhverfisstofnun, Rannsóknarmiðstöð ferðamála o.fl. Fasteignasjóður ríkisins leigir húsnæðið af núverandi eiganda þess, Reitum II, og endurleigir til þeirra stofnana sem nú er í húsinu. Fasteignasjóður greiðir ISS fyrir allan rekstur hússins og gilda um það mjög skýrar reglur sem kveðið var á um í útboðsgögnunum á sínum tíma. Samningurinn um rekstur húsnæðisins var gerður til 25 ára.
ISS sér um allan rekstur húsnæðins á Borgum. Meðal helstu þjónustuþátta má nefna:
• Öll ræsting í húsnæðinu, 5 starfsmenn að jafnaði.
• Öll sérverk, hreingerningar og sérþrif, þ.m.t. bónun, pólering, gluggaþvottur og annað tilfallandi.
• Öll lóðaumsjón, s.s. sláttur á grasi, snjómokstur, viðhald á grasflötum og trjágróðri
• Orkustýring
• Umsjón með loftræstikerfi
• Allt viðhald á húsnæði
• Póstþjónusta innanhúss
• Umsjón með fundarherbergjum og tæknibúnaði fundarherbergja
• Aðgangsstýring
• Umsjón með öryggis- og hússtjórnunarkerfum
• Veitingaþjónusta fyrir fundi
• Aðstoð við ráðstefnur og móttökur
• Sorphirða og flokkun (plast, pappír, málmar, gler, lífrænn úrgangur, efnaúrgangur og rafmagnstæki).
• Tækjaaðstoð á rannsóknarstofum (viðhald og viðgerðir).