Hrein vinnuaðstaða, aukin afköst
Vel ræst húsnæði og hrein vinnuaðstaða er ekki bara nauðsynlegt fyrir umhverfið, heldur líka fyrir vellíðan og aukin afköst starfsfólks. Flestir njóta þess að hafa hreint og þrifalegt húsnæði og umhverfi, en það er einnig hluti af ímynd fyrirtækisins.
ISS hefur sett ný viðmið á ræstingaþjónustu um allan heim með því að bjóða áhrifaríka og sveigjanlega þjónustulausn. Allar lausnir eru aðlagaðar að þörfum og óskum hvers viðskiptavinar. Við erum stöðugt að þróa nýjar aðferðir, áhöld, tæki og efni sem hjálpa okkur að bæta verkárangur og vinnuumhverfi okkar starfsfólks, með það að markmiði að minnka eða lágmarka neikvæð umhverfisáhrif.
Vel þjálfað starfsfólk er stór hluti af okkar velgengni og því leggjum við mikla áherslu á að ráða rétt fólk í rétt störf og jafnframt á þróun starfsfólks og starfsmannastjórnun.
Með því að bjóða aðlaðandi vinnuumhverfi getum við ráðið til okkar hæft starfsfólk sem gerir okkur kleyft að veita viðskiptavinum okkar hágæða þjónustu.
Daglegar ræstingar
- Regluleg þrif 2 til 7 sinnum í viku
- Starfsfólk þjálfað við ræstingaraðferðir og þjónustuviðmót
Síræsting
- Ræsting á dagtíma án þess að raska starfsemi viðskiptavinarins
- Sýnileg þjónusta og aukin samskipti
- Markvissari framkvæmd
- Aukin gæði
Hreingerningar og sérverkefni
- Allsherjarhreingerningar
- Bónleysing, bónanir og viðhald gólfa
- Teppahreinsun
- Vélskúring
- Sérhæfð þrif á steinteppum
- Þrif á húsgögnum og innréttingum
- Gluggaþvottur að innan og utan
- Gluggatjaldahreinsun
- Iðnaðarþrif
- Hreinsun eftir bruna eða vatnstjón
- Sótthreinsun
- Tyggjóhreinsun
- Þrif og sótthreinsun á ruslageymslum
Þrif í matvælaiðnaði
- Skilgreint gæðakerfi
- Starfsmannahald
- Þrifa- og sótthreinsiefni
- Tæki og búnaður
- Skjalfesting
- Gæðaeftirlit
- Persónuleg þjónusta
- Öryggi við afhendingu
- Fagleg ráðgjöf
Ræstingar á heilbrigðissviði
- Hjúkrunar og öldrunarstofnanir
- Heilsugæslustöðvar
- Rannsóknar -, skurð- og læknastofur
- Umsjón býtibúra
- Póleringar og bónbætingar
- Sérverkefni
Umsjón með rekstrarvörum
- Útvegum handþurrkur, salernispappír og aðrar rekstrarvörur
- Birgðahald á rekstrarvörum
- Útvegun og viðhald á pappírs og sápu skömmturum