ISS býður upp á tvær lausnir í hádeginu fyrir fyrirtæki og stofnanir í okkar þjónustu.
Annars vegar bjóðum við lausn sem við köllum “Létt og ferskt”. Sú felst í léttum og kaloríuminni mat með áherslum á grænmetisrétti, fiskrétti, léttar jógúrtsósur og ávexti.
Hina lausnina köllum við “að hætti mömmu” en þar bjóðum við þyngri mat sem hentar sumum betur en léttara fæði.
Með þessu geta stjórnendur fyrirtækja valið að breyta reglulega þeirri stefnu sem farin er í matarmálunum með því til dæmis að taka einn mánuð í senn með hvorri leið. Að sjálfsögðu vinnum við með áfram með hliðsjón og tillögum frá lýðheilsustöð og gætum þess að halda okkur innan þeirra viðmiða sem þar eru gefin. Þau viðmið gera ráð fyrir að prótein sé a.m.k. 15% orkunnar, fita ekki meiri en 35% og afgangurinn kolvetni.
Ekki er um að ræða val á milli matseðla daglega heldur gildir annar matseðillinn hverju sinni, eftir því hvaða leið hefur verið valin.
Hér má sjá matseðil fyrir viku í senn, með því að smella á þá viku sem óskað er eftir upplýsingum um. Matseðlarnir eru bæði aðgengilegir á .pdf og word formi.
14. maí - 18. maí - Að hætti mömmu >
á word formi
14. maí - 18. maí - Létt og ferskt >
á word formi
07. maí - 11. maí - Að hætti mömmu >
á word formi
07. maí - 11. maí - Létt og ferskt >
á word formi