Maturinn

Maturinn / Veitingasvið - ISS

Gott hráefni - betri matur
Maturinn fyrir mötuneyti er samsettur þannig að máltíð eigi að uppfylla allt að helming af allri orkuþörf starfsmanna dag hvern. Okkar markmið er að hráefnið, meðhöndlunin á því og samsetning matseðla sé miðuð við vitund um góða heilsu og vellíðan starfsmanna.

Þess vegna notum við ávallt nýtt hráefni og höfum unnar og reyktar matvörur í lágmarki. Við gætum fjölbreytnis í matarvali og til að mynda skiptum við daglega á milli rétta í mismunandi útfærslum . Við meðhöndlum matvöru eftir fremsta megni frá grunni og leggjum áherslu á að maturinn sé girnilegur. Einnig leggjum við mikla áherslu á að fyllsta hreinlætis sé gætt við framsetningu og framreiðslu.

 

 

 

 

 

Austurhrauni 7, 210 Garðabæ