Aðsendur matur, umsjón mötuneyta, ávaxtakörfur og veisluþjónusta með þarfir þínar að leiðarljósi
ISS sér um mötuneyti fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana. Hollur og góður matur er mikilvægur þáttur í að tryggja ánægju, heilbrigði og aukin afköst starfsfólks. Hvort sem þig vantar að láta sjá um mötuneyti starfsmanna, kaffistofuna eða umsjón með fundum og öðrum viðburðum þá búum við til lausn sem er sérsniðin að þínum þörfum. Að auki bjóðum við upp á lausnir varðandi móttökur, fundi, boð og veislur þar sem fagfólk okkar annast umsjón og framkvæmd.
Á veitingasviði ISS starfa nú um 60 manns. Starfsemin er á höfuðborgarsvæðinu, á Austurlandi og á Grundartanga. Í miðlægu eldhúsi ISS starfa faglærðir matreiðslumeistarar ásamt aðstoðarfólki. ISS þjónustar meðal annars 10 mötuneyti starfsmanna fyrir Landspítala Háskólasjúkrahús og selur yfir 2.000 matarskammta daglega.
Aðsendur matur
Viðskiptavinum gefst kostur á að panta aðsendan mat frá miðlægu eldhúsi ISS þar sem matreiðslumeistarar okkar framreiða dýrindis rétti daglega. Nánari upplýsingar: sala@iss.is.
Umsjón mötuneyta
ISS sér um mötuneyti fyrir fyrirtæki og stofnanir þar sem starfsfólk ISS framreiðir brauð, salat og heilsusamlegar máltíðir eða sérrétti. Nánari upplýsingar: sala@iss.is.
Ávaxtakörfur
Viðskiptavinir okkar geta pantað ávaxtakörfur af ýmsum gerðum sem henta öllum stærðum fyrirtækja. Þannig gefst starfsmönnum kostur á heilbrigðari millimálum sem eru betur til þess fallin að hjálpa þeim að viðhalda skerpu og athygli. Nánari upplýsingar: sala@iss.is.
Veisluþjónusta
Hvort sem um er að ræða veislur, fundi, móttökur, kvöldverði eða önnur tilefni þar sem veitinga er þörf þá höfum við réttu lausnina. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval góðra veitinga, sérsniðið að þörfum viðskiptavinarins. Nánari upplýsingar: sala@iss.is.