Góðir matreiðslumenn - betri matur
Í miðlægu eldhúsi okkar að Vatnagörðum 6 starfa þrír faglærðir matreiðslumeistarar ásamt aðstoðarfólki.
Fyrir okkur þýða fagleg og vönduð vinnubrögð að starfsmenn hafi gaman af vinnu sinni. Það skilar sér alla leið til viðskiptavinarins. Við tökum við ábendingum og séróskum með opnum huga.
Allir sem starfa í eldhúsum og mötuneytum okkar hafa lokið námskeiðum í hreinlætis- og gæðamálum og áherslum sem miða að öryggi við umgengni um matvöru.
Í miðlægu eldhúsi okkar ræður yfirmatreiðslumaðurinn Jakob M. Harðarson ríkjum. Hann nýtur aðstoðar tveggja annara matreiðslumanna ásamt öðru aðstoðarfólki. Þar fer fram undirbúningur og eldun á máltíðum fyrir viðskiptavini okkar. Við veljum og handleikum hráefnið af kostgæfni. Við leggjum áherslu á að halda í hefðir en tileinka okkur nýjungar, áherslu á fjölbreytni í matargerð, næringargildi, hollustu og lífrænt ræktaðar matvörur.