Vel ræst húsnæði og hrein vinnuaðstaða er ekki bara nauðsynlegt fyrir
umhverfið, heldur líka fyrir vellíðan og aukin afköst starfsfólks. Flestir njóta
þess að hafa hreint og þrifalegt húsnæði og umhverfi, en það er einnig hluti af
ímynd fyrirtækisins.
ISS hefur sett ný viðmið á ræstingaþjónustu um allan
heim með því að bjóða áhrifaríka og sveigjanlega þjónustulausn. Allar lausnir
eru aðlagaðar að þörfum og óskum hvers viðskiptavinar. Við erum stöðugt að þróa
nýjar aðferðir, áhöld, tæki og efni sem hjálpa okkur að bæta verkárangur og
vinnuumhverfi okkar starfsfólks, með það að markmiði að minnkar eða lágmarkar
neikvæð umhverfisáhrif.
Þjálfað starfsfólk er stór hluti af okkar velgengni,
vegna þess að það er þjónustuviðhorf þess sem að lokum uppfyllir væntingar
viðskiptavinarins. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á ráðningu, þróun
starfsfólks og starfsmannastjórnun. Aðeins með því að bjóða aðlaðandi
vinnuumhverfi getum við ráðið hæft starfsfólk sem við þörfnumst til þess að
skila gæða þjónustu til okkar viðskiptavina.
Daglegar ræstingar
- Regluleg þrif 2 til 7 sinnum í viku
- Starfsfólk þjálfað við ræstingaraðferðir og þjónustuviðmót
Síræsting
- Ræsting á dagtíma án þess að raska starfsemi
viðskiptavinarins
- Sýnileg þjónusta og aukin samskipti
- Markvissari framkvæmd
- Aukin gæði
Hreingerningar og sérverkefni
- Allsherjarhreingerningar
- Bónleysing, bónanir og viðhald gólfa
- Teppahreinsun
- Vélskúring
- Sérhæfð þrif á steinteppum
- Þrif á húsgögnum og innréttingum
- Gluggaþvottur að innan og utan
- Gluggatjaldahreinsun
- Iðnaðarþrif
- Loftstokkahreinsun og –eftirlit
- Hreinsun eftir bruna eða vatnstjón
- Sótthreinsun
- Tyggjóhreinsun
- Þrif og sótthreinsun á ruslageymslum
Þrif í matvælaiðnaði
- Skilgreint gæðakerfi
- Starfsmannahald
- Þrifa- og sótthreinsiefni
- Tæki og búnaður
- Skjalfesting
- Gæðaeftirlit
- Persónuleg þjónusta
- Öryggi við afhendingu
- Fagleg ráðgjöf
Ræstingar á heilbrigðissviði
- Hjúkrunar og öldrunarstofnanir
- Heilsugæslustöðvar
- Rannsóknar -, skurð- og læknastofur
- Umsjón býtibúra
- Póleringar og bónbætingar
- Sérverkefni
Umsjón með rekstrarvörum
- Útvegum handþurrkur, salernispappír og aðrar
rekstrarvörur
- Birgðahald á rekstrarvörum
- Útvegun og viðhald á pappírs og sápu skömmturum