Vel ræst húsnæði og hrein vinnuaðstaða er ekki bara nauðsynlegt fyrir umhverfið, heldur líka fyrir vellíðan og aukin afköst starfsfólks. Flestir njóta þess að hafa hreint og þrifalegt húsnæði og umhverfi, en það er einnig hluti af ímynd fyrirtækisins.


ISS hefur sett ný viðmið á ræstingaþjónustu um allan heim með því að bjóða áhrifaríka og sveigjanlega þjónustulausn. Allar lausnir eru aðlagaðar að þörfum og óskum hvers viðskiptavinar. Við erum stöðugt að þróa nýjar aðferðir, áhöld, tæki og efni sem hjálpa okkur að bæta verkárangur og vinnuumhverfi okkar starfsfólks, með það að markmiði að minnkar eða lágmarkar neikvæð umhverfisáhrif.


Þjálfað starfsfólk er stór hluti af okkar velgengni, vegna þess að það er þjónustuviðhorf þess sem að lokum uppfyllir væntingar viðskiptavinarins. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á ráðningu, þróun starfsfólks og starfsmannastjórnun. Aðeins með því að bjóða aðlaðandi vinnuumhverfi getum við ráðið hæft starfsfólk sem við þörfnumst til þess að skila gæða þjónustu til okkar viðskiptavina.

Daglegar ræstingar

  • Regluleg þrif 2 til 7 sinnum í viku
  • Starfsfólk þjálfað við ræstingaraðferðir og þjónustuviðmót

Síræsting

  • Ræsting á dagtíma án þess að raska starfsemi viðskiptavinarins
  • Sýnileg þjónusta og aukin samskipti
  • Markvissari framkvæmd
  • Aukin gæði

Hreingerningar og sérverkefni

  • Allsherjarhreingerningar
  • Bónleysing, bónanir og viðhald gólfa
  • Teppahreinsun
  • Vélskúring
  • Sérhæfð þrif á steinteppum
  • Þrif á húsgögnum og innréttingum
  • Gluggaþvottur að innan og utan
  • Gluggatjaldahreinsun
  • Iðnaðarþrif
  • Loftstokkahreinsun og –eftirlit
  • Hreinsun eftir bruna eða vatnstjón
  • Sótthreinsun
  • Tyggjóhreinsun
  • Þrif og sótthreinsun á ruslageymslum

Þrif í matvælaiðnaði

  • Skilgreint gæðakerfi
  • Starfsmannahald
  • Þrifa- og sótthreinsiefni
  • Tæki og búnaður
  • Skjalfesting
  • Gæðaeftirlit
  • Persónuleg þjónusta
  • Öryggi við afhendingu
  • Fagleg ráðgjöf

Ræstingar á heilbrigðissviði

  • Hjúkrunar og öldrunarstofnanir
  • Heilsugæslustöðvar
  • Rannsóknar -, skurð- og læknastofur
  • Umsjón býtibúra
  • Póleringar og bónbætingar
  • Sérverkefni

Umsjón með rekstrarvörum

  • Útvegum handþurrkur, salernispappír og aðrar rekstrarvörur
  • Birgðahald á rekstrarvörum
  • Útvegun og viðhald á pappírs og sápu skömmturum


Site Info