Mörg fyrirtæki vita að starfsfólk notar dag hvern mikinn tíma í
skrifstofutengd störf og aðstoðarstörf. Flestir eru sammála að tími starfsmanna
er dýrmætur. Pappírslaus prentari eða ljósritunarvél rétt áður en fundur byrjar,
blekhylkið búið, ljósritunarvélin flækt, enginn til að ljósrita bunkann,...
kannast ekki allir við þetta?
Ávinningur af vel skilgreindri
þjónustulausn á skrifstofusviði er verulegur fyrir rekstur fyrirtækisins og
vellíðan og afköst starfsfólks.
ISS skrifstofuaðstoð er einn af kjarna þjónustuþáttum
fyrirtæksins. Við afgreiðum allt frá þjónustuborðum og póstumsjón til móttöku.
Með því að láta ISS sjá um marga þjónustuþætti næst hámarks hagræðing.
Skrifstofuaðstoð
- Símavarsla
- Móttaka
- Þjónustuborð
- Ljósritun
- Póstumsjón
- Aðgangsstýring
- Umsjón fundarherbergja