Siðareglur ISS Ísland (ISS Code of Conduct)

Siðareglur ISS setja fram helstu lykilatriði varðandi siðferði og heiðarlega starfshætti, sem eiga við í rekstri fyrirtækisins og eru leiðarljós fyrir framkomu og viðhorf allra starfsmanna. Lykilatriðin varða:

  • Siðferði starfsmanna
  • Reglur gegn spillingu og mútum
  • Starfshætti í samræmi við samkeppnislög
  • Samskipti við viðskiptafélaga
  • Siðferðisreglur á vinnustað
  • Ábyrgð fyrirtækisins

Siðferðisreglur ISS styðja við Gildi ISS og þær eru samhæfðar Grunnstefnu ISS, reglum og leiðbeiningum ISS.

Siðferðisreglur ISS eru hluti af ráðningarskilmálum starfsfólks hjá ISS.

Siðferði starfsmanna

  • Starfsmenn verða að fylgja lögum
  • ISS gerir ráð fyrir að allir starfsmenn vinni samkvæmt gildum ISS; Heiðarleiki, Gæði, Frumkvæði og Ábyrgð
  • Þar sem lög eða reglur skortir varðandi persónulega ábyrgð, verður hver starfsmaður að viðhafa heiðarlegt mat og varkárni
  • Ef spurningar vakna hjá starfsmönnum, ber þeim að hafa samband við næsta yfirmann eða annan ábyrgan samstarfsmann
  • Samskipti við viðskiptavini, samstarfsmenn og samstarfsaðila skulu fara fram af virðingu og sanngirni
  • Áreitni og einelti, þar með talin kynferðisleg áreitni, er með öllu óásættanleg innan ISS
  • Neysla og áhrif áfengis og annarra vímuefna er ekki leyfð við störf hjá ISS

Spilling og mútur

  • ISS er á móti spillingu og mútum og berst gegn slíku
  • ISS keppir um viðskipti á sanngirnisgrundvelli og einvörðungu á eigin verðleikum
  • Óháð staðbundnum venjum, eru allar persónulegar greiðslur, endurgreiðslur og mútur milli ISS og viðskiptavina, birgja eða opinberra aðila, stranglega bannaðar
  • Bannað er að þiggja gjafir eða annan þakklætisvott frá viðskiptavinum - nema að það sé viðtekin venja í viðkomandi viðskiptaumhverfi og af hóflegu verðgildi og þjóni tilgangi viðskiptanna

Samræmi við samkeppnislög

  • Það er kjarni viðskiptahátta ISS að uppfylla allar viðeigandi samkeppnisreglur og reglugerðir
  • ISS hefur ekki uppi verðsamráð, skiptir ekki markaði eða þjónustuþáttum með samkeppnisaðilum
  • ISS viðhefur ekki samráð milli samkeppnisaðila vegna útboða
  • ISS ræðir ekki samkeppnisatriði (eins og verðlagningu, afslætti, bónusa, söluskilmála o.s.frv.) við samkeppnisaðila

Tengsl við viðskiptafélaga

  • ISS upplýsir viðskiptavini og birgja um Siðareglur ISS
  • Við afhendingu þjónustu á verkstað fylgir ISS viðurkenndum umhverfis-, gæða-, öryggis- og heilsufarsstöðlum
  • Þagnarskylda gagnvart viðskiptavinum er virt og viðeigandi gögn varðveitt
  • Athugasemdir viðskiptavina eru teknar alvarlega og eru skilgreindar sem verðmætar upplýsingar til sífelldra endurbóta í bættri þjónustu ISS

Vinnustaða staðlar

  • ISS leitast við að tryggja viðunandi vinnuaðstæður fyrir starfsfólk, m.t.t. viðeigandi heilsu- og öryggisstaðla
  • ISS líður ekki mismunun starfsmanna varðandi ráðningar og störf; allir starfsmenn ISS hafa rétt til að fá sanngjarna og sömu meðferð
  • ISS virðir félagafrelsi og samningsrétt; allir starfmenn ISS eiga rétt á að vera í stéttarfélagi
  • ISS samþykkir ekki nauðungarvinnu né barnaþrælkun
  • ISS býður viðeigandi laun sem að lágmarki fylgir launatöxtum kjarasamninga og reglum á vinnumarkaði
  • ISS styður og virðir umsamin lágmarkslaun
  • Starfmönnum býðst þjálfun í samræmi við þau störf sem þeir sinna
  • ISS virðir einkalíf starfsmanna og verndar tengdar upplýsingar á viðeigandi hátt

Ábyrgð fyrirtækisins

  • ISS er hluti af "United Nations Global Compact" og skuldbindur sig til að fylgja 10 meginatriðum samningsins
  • ISS virðir, styður og framfylgir mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða vinnumálastofnunarinnar
  • ISS vinnur samkvæmt meginreglum um góða stjórnun fyrirtækja
  • ISS vinnur sífellt að því að minnka umhverfisáhrif af starfsemi sinni
  • ISS er ábyrgur fyrirtækjaþegn í þeim samfélögum þar sem fyrirtækið starfar
  • Samfélags- umhverfis- og siðferðisleg skuldbinding ISS skal endurspeglast í öllum samskiptum, við viðskiptavini, starfsmenn, birgja og aðra hagsmunaaðila

 

 

 

 

Austurhrauni 7, 210 Garðabæ