ISS Ísland hefur markvisst unnið að því undanfarin ár að lágmarka notkun ræstingar- og hreingerningarefna við dagleg störf með umtalsverðum árangri. Fyrirtækið hefur frá 1997 haft umhverfisstefnu sem er leiðarljós allra starfsmanna varðandi umhverfismál.
Umhverfisstefna
ISS Ísland ehf. vill axla ábyrgð í umhverfismálum sem ábyrgur hlekkur í vistkeðjunni.
Markmið ISS Ísland í umhverfismálum er að lágmarka mengun og skaða í umhverfinu vegna starfsemi fyrirtækisins. Með því að móta verklag fyritækisins á hverju sviði með vistvernd í huga leggja stjórnendur og starfsfólk sitt af mörkum til að ná þessum markmiðum.
Markmið ISS Ísland í umhverfismálum nást með því að:
- Að fræða starfsfólk um stefnu fyrirtækisins og gera þeim ljósa ábyrgð og hlutverk þess sem mikilvægum hlekk í umhverfisvernd.
- Með því að hafa vistvernd í huga við þjálfun starfsfólks í öllum störfum.
- Velja eftir því sem kostur er umhverfishæf efni og vörur.
- Velja eftir því sem hægt er endurnýtanleg efni og vörur.
- Lágmarka notkun efna.
- Lágmarka mengandi vinnuferla.
- Fylgjast með nýjungum sem eru liður í bættri umhverfisvernd.
- Veita viðskiptavinum ráðgjöf og þjónustu varðandi umhverfisþátt ræstinga.
- Hvetja viðskiptavini til verklags, sem leiðir til aukinnar endurvinnslu, minni mengunar og til bættrar nýtingar og sparnaðar á öllum sviðum þjónustu okkar.
Daglegar ræstingar og ræstingar á heilbrigðissviði eru með norrænu umhverfisvottunina Svaninn. Með Svansvottun er tryggt að verkferlar ISS uppfylla ströngustu kröfur um umhverfis og gæðamál. |
 |
- Svansvottun ræstingarþjónustu innifelur :
- Gæðamarkmið og gæðastefnu
- Starfsmannnastefnu
- Umhverfisstefnu
- Verklagsreglur og leiðarvísa til að framkvæma gæðaræstingu
- Sölu og markaðsmál
- Upphaf og eftirfylgni verka.
- Ráðningaferli sem innifelur skilgreint ferli um kennslu og þjálfun starfsmanna
- Verklagsreglur varðandi innkaup